Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins

Geir H. Haarde hefur nú dregið sig í hlé frá umróti stjórnmálanna vegna heilsubrests. Þar fer drengur góður, réttsýnn og heiðarlegur leiðtogi, sem menn bera almennt virðingu fyrir óháð stjórnmálaskoðunum. Þar er skarð fyrir skildi.

Enginn maður er þó ómissandi, enginn er stærri en liðsheildin, enginn er æðri þeim hugsjónum, sem við berjumst fyrir. Og maður kemur í manns stað.

Það er gæfa Sjálfstæðisflokksins að þar er innanbúðar geysimikið mannaval. Þar fara saman hugsjónir og reynsla.  Hvergi er að finna jafn sterka einstaklinga hvað varðar reynslu á hinum ýmsum sviðum þjóðlífsins, ekki síst í stjórnun og rekstri fyirtækja og jafnvel stærri eininga svo sem heilla sveitarfélaga en einnig hvað varðar öflugar bakvarðarsveitir og bakhjarla. Hugmyndafræðilega er Sjálfstæðisflokkurinn mjög öflugur flokkur, sem setur frelsi mannsins og frumkvæði einstaklingsins ofar öllu. Sumir hafa þó leikið sér að því að skrumskæla þessa hugsjón bæði í orði og í verki.   

Á morgun sunnudag, verður kosið um næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Bjarni Benediktsson hefur allt það til að bera, sem einkennir góðan og öflugan leiðtoga þrátt fyrir ungan aldur. Hann gengur hreint til verks. 

Kristján Þór Júlíusson er ekki síðri valkostur og hefur yfir mikilli reynslu að ráða. Hann er heiðarlegur og réttsýnn maður.  

Það er gæfa Sjálfstæðisflokksins að flokksmenn geta á lýðræðislegan hátt valið á milli þessara tveggja frábæru formannsefna.

Geri aðrir stjórnmálaflokkar betur!

leader.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl

Geir , drengur góður segir þú.  Jú hann er örugglega mjög "næs" við vini sína en mér finnst ekkert sérstaklega drengilegt að fara út í heim og plata fólk til að leggja sparifé sitt inn í gjaldþrota banka.  Mér finnst það bara andstyggilegt og ég skil ekki hvernig fólk sem slíkt hefur gert getur sofið rólegt á nóttunni

Ásta B (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 00:27

2 Smámynd: Elinóra Inga Sigurðardóttir

Missti ég af einhverju? Var ekki Geir forsætisráðherra? Ég vissi ekki að hann hefði verið bankastjóri

Elinóra Inga Sigurðardóttir, 29.3.2009 kl. 00:35

3 identicon

Já þú hefur greinilega misst af ýmsu.

Flettu upp í sögubókunum svona ár aftur í tímann og hver fór þá í ferðalag til útlanda og sagði að allt væri í góðu lagi hér með bankana?

Ásta B (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 00:41

4 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Það er greinilegt að sitt sýnist hverjum um heiðarleika!

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 29.3.2009 kl. 01:05

5 identicon

Ásta´. Ég skil vel af hverju þú birtir ekki sorann þinn undir fullu nafni. Ég bendi þér á að Ingibjörg Sólrún og Björgvin G. Sigurðsson gerðu það líka, Ingibjörg hefur upplýst það. Ég þekki engann Íslending sem getur ekki tekið undir það að Geir H. Haarde sé góður drengur, meira að segja menn eins og Ögmundur Jónasson, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Björgvin G Sigurðsson hafa opinberlega lýst Geir sem  traustum og góðum manni og félaga. Sumt af þessu fólki er meira að segja bundið vinaböndum við þennann sóma mann.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 05:50

6 Smámynd: Hörður Valdimarsson

Maðurinn sagði allt fram á seinasta dag að allt væri í lagi. Menn geta því velt fyrir sér hvort maðurinn vaði í vitinu eða sé lygari.

Hörður Valdimarsson, 29.3.2009 kl. 07:54

7 identicon

Sæll Ómar

Það fyrsta sem ég ætla að segja þér er að ég skrifa undir mínu nafni hér.

Ég heiti Ásta og er Björnsdóttir.  Líður þér betur?

Ef sannleikurinn er sori þá verður bara að hafa það.

Mér finnst Geir ekkert betri maður gagnvart þeim sem hann kom óheiðarlega fram við þótt Ingibjörg Sólrún og félagar hennar í Samspillingunni (=með Sjálfstæðisflokknum) hafi verið jafn óheiðarleg og hann.

Ég sagði að ég efst ekkert um að Geir sé hinn vænsti maður gagnvart vinum sínum.  Það er reyndar Jón Ásgeir líka (vinir hans vera honum mjög vel söguna).  'Eg þekki Geir hins vegar aðeins af verkum hans og met hann út frá því.

En drengilegt var það ekki þegar hann , Geir ,hélt því fram við fólk að hér væri allt í lagi.  Drengilegt var það ekki að síðasta sumar gumaði hann sig af því í fjölmiðlum að allt væri að komast í betra stand vegna þess að stjórnin hefði ekki gert neitt.  

Ef ykkur "vinum" Geirs líður betur þá get ég svo sem sagt alveg það sama um Ingibjörgu Sólrúnu og Björgvin . En það breytir ekki gjörðum eins í hópnum þótt hinir hafi líka verið ódrengilegir.

Ég skil núna orð Davíðs að þessi endurreisnarskýrsla er ekki pappírsins virði.  Sjálfstæðismenn munu aldrei viðurkenna í hjarta sínu viðurkenna að þeir hafi brotið ákveðin prinsipp gagnvart þjóðinni.

 Á þá er ekki orðum né atkvæðum eyðandi.

Ásta B (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 08:46

8 Smámynd: Hörður Valdimarsson

Ásta er fullkomlega sammála þér. Þotuliðið gerði ekkert. Ingibjörg í New York og Geir fljúgandi á einkaþotum á natófundi og að opna Nasdaq. Hvað Björgvin varðar,  þá var hann bara þarna til að sækja launin sín.

Hörður Valdimarsson, 29.3.2009 kl. 12:31

9 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

"Hvergi er að finna jafn sterka einstaklinga" ... "heiðarlega og réttsýna" er nokkuð dæmigerður rembingur í Flokknum, einmitt þetta er hugsunarhátturinn sem kom okkur í þrot. Við erum mest og best, ríkust í heimi og höfum ekkert að sækja til annara.

Tel að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að nota endurskoðunarskýrsluna fyrir markvissa naflaskoðun næstu fjögur árin og þá gætu þeir verið orðnir stjórntækir. Það gæti orðið okkur virkilega dýrkeypt að reyna að gíra þjóðarsálina inn sama oflæti og tilheyrandi neysluhyggju eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir. Nú er nýtt upphaf. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 29.3.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband