Samheldni og heilbrigð framtíðarsýn

Mikil samheldni einkennir yfirstandandi Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Menn eru staðráðnir í því að yfirstíga núverandi vandamál þjóðfélagsins með samhentu átaki. Sjálfstæðisstefnan er í fyrirrúmi, frelsi einstaklingsins og frumkvæði hans í hávegum haft. Stefna, sem byggð er á góðum og gömlum gildum.

Afturhaldsdraugurinn er þó aldrei langt undan á öllum sviðum mannlífsins. Það er með ólíkindum, hve annars vel menntað og eðlisgreint fólk getur verið þröngsýnt og uppfullt af eiginhagsmunapoti. Fundurinn í dag vísaði slíkum draugagangi til föðurhúsanna. Slíkt fólk á ekki heima í framsýnum stjórnmálaflokki. Slíkir afturhaldsdraugar eiga því ekki heima í Sjálfstæðisflokknum! Þetta vita menn.

Lengi skal þó manninn reyna.   

Mikil vinna hefur verið lögð í nefndavinnu á vegum flokksins bæði hvað varðar Evrópunefnd og Endurrreisnarnefnd. Þessi mikla og í raun merkilega vinna á eftir að skila sér í öflugra flokksstarfi og hún á jafnvel eftir að skila sér til alls þjóðfélagsins í heild með tímanum. Allt röfl um annað er út í hött. 

Sumir höfðu spáð Sjálfstæðisflokknum miklum hrakförum, klofningi og óánægju. Hvorugt hefur ræst. Menn eru einhuga í því að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar utan ESB. Á morgun verður kosinn nýr formaður og hver sem útkoman verður, þá eru báðir valkostirnir góðir.

Varaformaður floksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur sýnt og sannað að hún stendur undir nafni. Hún er hreint frábær!

Landsfundurinn hefur styrkt trú mína á Sjálfstæðisflokkinn. Þótt einstaklingurinn geti verið sterkur er heildin þó enn sterkari. Við eigum nú á brattann að sækja. Við þufum að virkja hvern einstakan liðsmann, stóran og smáan, veikan og sterkan, bæði Davíð og Golíat.

Framtíð Sjálfstæðisflokksins og þjóðarinnar er björt. Við kvíðum ekki framtíðinni.

frelsi.jpg
mynd: hekla.blog.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Ég hefði viljað sjá þig í framlínunni kæra vinkona

Guðrún Sæmundsdóttir, 28.3.2009 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband