Geir H. Haarde hefur nú dregið sig í hlé frá umróti stjórnmálanna vegna heilsubrests. Þar fer drengur góður, réttsýnn og heiðarlegur leiðtogi, sem menn bera almennt virðingu fyrir óháð stjórnmálaskoðunum. Þar er skarð fyrir skildi.
Enginn maður er þó ómissandi, enginn er stærri en liðsheildin, enginn er æðri þeim hugsjónum, sem við berjumst fyrir. Og maður kemur í manns stað.
Það er gæfa Sjálfstæðisflokksins að þar er innanbúðar geysimikið mannaval. Þar fara saman hugsjónir og reynsla. Hvergi er að finna jafn sterka einstaklinga hvað varðar reynslu á hinum ýmsum sviðum þjóðlífsins, ekki síst í stjórnun og rekstri fyirtækja og jafnvel stærri eininga svo sem heilla sveitarfélaga en einnig hvað varðar öflugar bakvarðarsveitir og bakhjarla. Hugmyndafræðilega er Sjálfstæðisflokkurinn mjög öflugur flokkur, sem setur frelsi mannsins og frumkvæði einstaklingsins ofar öllu. Sumir hafa þó leikið sér að því að skrumskæla þessa hugsjón bæði í orði og í verki.
Á morgun sunnudag, verður kosið um næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Bjarni Benediktsson hefur allt það til að bera, sem einkennir góðan og öflugan leiðtoga þrátt fyrir ungan aldur. Hann gengur hreint til verks.
Kristján Þór Júlíusson er ekki síðri valkostur og hefur yfir mikilli reynslu að ráða. Hann er heiðarlegur og réttsýnn maður.
Það er gæfa Sjálfstæðisflokksins að flokksmenn geta á lýðræðislegan hátt valið á milli þessara tveggja frábæru formannsefna.
Geri aðrir stjórnmálaflokkar betur!
Stjórnmál og samfélag | 28.3.2009 | 23:46 (breytt 29.3.2009 kl. 01:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hefði þessi sama uppákoma átt sér stað í Sjálfstæðisflokknum hefðu allir fjölmiðlar talað um "rússneska kosningu".

Stjórnmál og samfélag | 28.3.2009 | 22:50 (breytt kl. 23:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mikil samheldni einkennir yfirstandandi Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Menn eru staðráðnir í því að yfirstíga núverandi vandamál þjóðfélagsins með samhentu átaki. Sjálfstæðisstefnan er í fyrirrúmi, frelsi einstaklingsins og frumkvæði hans í hávegum haft. Stefna, sem byggð er á góðum og gömlum gildum.
Afturhaldsdraugurinn er þó aldrei langt undan á öllum sviðum mannlífsins. Það er með ólíkindum, hve annars vel menntað og eðlisgreint fólk getur verið þröngsýnt og uppfullt af eiginhagsmunapoti. Fundurinn í dag vísaði slíkum draugagangi til föðurhúsanna. Slíkt fólk á ekki heima í framsýnum stjórnmálaflokki. Slíkir afturhaldsdraugar eiga því ekki heima í Sjálfstæðisflokknum! Þetta vita menn.
Lengi skal þó manninn reyna.
Mikil vinna hefur verið lögð í nefndavinnu á vegum flokksins bæði hvað varðar Evrópunefnd og Endurrreisnarnefnd. Þessi mikla og í raun merkilega vinna á eftir að skila sér í öflugra flokksstarfi og hún á jafnvel eftir að skila sér til alls þjóðfélagsins í heild með tímanum. Allt röfl um annað er út í hött.
Sumir höfðu spáð Sjálfstæðisflokknum miklum hrakförum, klofningi og óánægju. Hvorugt hefur ræst. Menn eru einhuga í því að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar utan ESB. Á morgun verður kosinn nýr formaður og hver sem útkoman verður, þá eru báðir valkostirnir góðir.
Varaformaður floksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur sýnt og sannað að hún stendur undir nafni. Hún er hreint frábær!
Landsfundurinn hefur styrkt trú mína á Sjálfstæðisflokkinn. Þótt einstaklingurinn geti verið sterkur er heildin þó enn sterkari. Við eigum nú á brattann að sækja. Við þufum að virkja hvern einstakan liðsmann, stóran og smáan, veikan og sterkan, bæði Davíð og Golíat.
Framtíð Sjálfstæðisflokksins og þjóðarinnar er björt. Við kvíðum ekki framtíðinni.
mynd: hekla.blog.is
Stjórnmál og samfélag | 28.3.2009 | 19:14 (breytt kl. 21:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
http://www.youtube.com/watch?v=q2_ddK0Kuew&feature=related
Vaxandi óánægja þar inni. Viljum við taka þátt í þessu? Hlustum á viðvörun Breta þeir hafa reynsluna.
Stjórnmál og samfélag | 19.3.2009 | 15:06 (breytt kl. 18:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
![]() |
Mikill kynjamunur á lyfjatöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 18.3.2009 | 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það eitt að Frakkar skuli nú óska eftir inngöngu í NATO styrkir þann grun. Þessi einhliða ákvörðun þeirra grefur að sjálfsögðu undan hernaðarbandalagi ESB ríkja; ESDP (European Security and Defence Policy).
Einhugur ríkir innan franska þingsins um þessa ákvörðun sem er í sjálfu sér afar merkilegt. Um 40 ár eru síðan Charles de Gaulle dró landið út úr NATO þar sem hann taldi að það græfi undan fullveldi þjóðarinnar. Nú virðist sem Nicolas Sarkozy forseti telji, að ESDP grafi undan fullveldi frönsku þjóðarinnar.
Frakkar hafa löngum verið hálfgerðir vandræðagripir innan ESB og virðast gera allt "My way". Skemmst er að minnast þess er Sarkozy forseti hvatti franska bílaframleiðendur til að færa alla bilaframleiðsluna til Frakklands. Það vakti mikla ólgu í öðrum ESB löndum austantjalds. Nú er fjandinn laus í ESB.
Stjórnmál og samfélag | 17.3.2009 | 22:02 (breytt kl. 22:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útvarp Saga er nýr hressilegur miðill. Stöðin er eins konar þjóðarsál, rödd alþýðunnar. Sumum kann að finnast hún vera einsleit í skoðunum en það er í raun ekki stöðinni um að kenna. Hún endurspeglar einfaldlega skoðanir þeirra sem hafa nennu til að hringja inn í símaþættina.
Nú stendur yfir skoðanakönnun meðal hlustanda um það hvort menn telji fullveldi Íslands dýrmæta auðlind eða ekki. Mér sýnist menn ekki velkjast í neinum vafa um þetta atriði.
Stjórnmál og samfélag | 16.3.2009 | 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Prófkjörið hvarf algjörlega í skuggann.
Reyndar tapaði ég prófkjörinu en kvöldinu var þó bjargað þar sem ég vann HÍB Skotkeppni kvenna 2009. Barátta var ströng og hafnaði Sigurlína í 2. sæti (munaði einu stigi) Rannveig fékk þriðja sætið.
Takk fyrir æðislegt kvöld stelpur!
(ég er greinilega betri skytta en pólitíkus, en takk samt fyrr öll atkvæðin í prófkjörinu)
![]() |
![]() |
Stjórnmál og samfélag | 15.3.2009 | 15:06 (breytt kl. 15:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
![]() |
Afsökunarbeiðni vegna Breiðavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.3.2009 | 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hafið þið leitt hugann að því hvað hugvitsmaður getur skapað mörgum atvinnu með einni hugmynd?
Nefna má eftirfarandi störf / starfsemi:
1) viðskiptafræðingur sem gerir viðskiptaáætlun
2) lögfræðingur eða verkfræðingur sem gerir einkaleyfi
3) einkaleyfastofur, sem gerir nýnæmiskönnun og skráir leyfin
4) hönnuðir sem gera frumgerð
5) rannsóknarmenn sem gera prófanir
6) framleiðslufyrirtæki
7) markaðsfræðingur kannar markað
8) sölumaður kemur vöru til verslunar og neytenda
9) grafískur hönnuður gerir auglýsingar og jafnvel vefsíðu
Fleira mætti nefna
Það eru þó ýmsar hindranir í veginum fyrir nýjar hugmyndir:
Virðingarleysi og fordómar er oft eitt af því fyrsta sem mætir hugvitsmanni þegar hann fer af stað með hugmynd sína, sérstaklega ef hann er ekki með réttu menntunina fyrir þessa ákveðnu hugmynd, eða er ekki með réttu hugmyndina þ.e. hún fellur ekki undir líftækni, hugbúnað, tölvutækni eða hönnun. Þetta eru auðvitað hreinir fordómar.
Hugvitsmenn eru eins misjafnir eins og þeir eru margir. Sumir vilja stofna fyrirtæki og læra að gera
viðskiptaáætlanir, aðrir ekki. Yfirleitt vilja þeir standa undir nafni og vera hugvitssamir, en þó ekki sérfræðingar í gerð viðskiptaáætlana.
Sumir eru það frjóir að þeir myndu vilja leggja hugmyndir sínar inn í hugmyndabanka og selja aðgang að þeim. Hugmyndabanki myndi minnka fordóma og auka möguleika á að hugmynd verði að vöru, og að hugvitsmaður gæti jafnvel sjálfur hagnast á henni.
Ráðgjafar á jafnréttisgrunni eru nauðsynlegir, þar sem gerðir eru skriflegir trúnaðarsamningar við
hugvitsmanninn. Þannig skapast traust. Þetta yrði nokkurs konar jafningjafræðsla þar sem hinir lengra komnu leiðbeina byrjendum.
Samvinna hugvitsmanns við mismunandi þekkingarsvið getur flýtt ferlinu frá hugmynd að vöru.
Verndun hugmynda er dýrt ferli og hefur knésett margan hugvitsmanninn. Það er dýrt að sitja uppi með einkaleyfi, sem ekki tekst að selja eða gera eitthvað úr. Það þyrfti að breyta og einfalda þetta kerfi.
Af hverju gildir t.d. ekki höfundarréttur á viðskiptaáætlun sem fyrsta vernd? Einkaleyfastofan eða sýslumaður getur gefið hugmyndinni stimpilinn Mér sýnt. Þetta yrði mun ódýrara sem fyrsta vernd, en gerð einkaleyfis.
Það myndi sparast tími ef frumgerð væri unnin í tölvu með þrívídd þar sem virkni hlutarins yrði könnuð. Þannig myndu sparast margar vinnustundir og frumgerðarsmíðin yrði markvissari.
Framleiðsla á vöru krefst þolinmóðs fjármagns, sem er ekki til á Íslandi. Þessu þarf að breyta!
En það er ekki nóg að vera með góða hugmynd það þarf að koma vörunni til neytendans.
Markaðssetning hefur verið dýrt, torvelt og langt ferli, sérstaklega fyrir litla þjóð í miðju Atlantshafi. Þetta kerfi þarf að endurskoða með hliðsjón af nýrri tækni. Ísland er ekki lengur eyland, við erum hluti af alheimsmarkaði og lítil fyrirtæki hafa sömu möguleika og hin stóru með tilkomu Internetsins. Með því nærðu beint til neytendans út um allan heim ef þú kannt réttu tökin á tækninni; réttu trixin.
Það þarf ekki lengur að taka markaðsstjóra á leigu né ráða sérstaka dreifiaðila. Það eru breyttir tímar, við getum prófað vörur okkar beint á erlendum markaði og það þarf ekki að kosta margar milljónir.
Þetta eru aðeins nokkur atriði sem ætti að endurskoða í ferlinu frá hugmynd að vöru.
Nánar á heimasíðu minni: www.elinorainga.com
Stjórnmál og samfélag | 11.3.2009 | 15:55 (breytt 12.3.2009 kl. 10:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
aslaugas
-
malacai
-
andriheidar
-
annaandulka
-
annabjo
-
arndisthor
-
agbjarn
-
fjallkona1
-
astamoller
-
bjarnihardar
-
blues
-
gattin
-
baenamaer
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
dofri
-
doggpals
-
ekg
-
ellyarmanns
-
ea
-
grazyna
-
gudfinna
-
vglilja
-
drsaxi
-
gummisteingrims
-
alit
-
zeriaph
-
gylfithor
-
heim
-
hjaltisig
-
hlini
-
maple123
-
daliaa
-
jakobk
-
jonaa
-
jonmagnusson
-
juliusvalsson
-
kristjangudm
-
lady
-
marinomm
-
mariaannakristjansdottir
-
strakamamman
-
martasmarta
-
martagudjonsdottir
-
omarbjarki
-
omarragnarsson
-
perlaoghvolparnir
-
hux
-
pjeturstefans
-
fullvalda
-
sigmarg
-
sigurborgkrhannesdottir
-
einherji
-
hvala
-
stebbifr
-
steinnhaf
-
saethorhelgi
-
tomasha
-
steinibriem
-
skrifa
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |