Færsluflokkur: Bloggar

Súrt regn.

Ég man að á árum áður var ekki hægt að opna dagblað eða horfa á fréttir án þess að heyra minnst á SÚRT REGN, en í dag heyrir maður aldrei minnst einu orði á það. Fjölmiðlar eru skemmtileg fyrirbæri þar eiga sér stað tískusveiflur eins og annars staðar. Nú er svifrykið inni!
Það skyldi þó aldrei vera sterk tengsl á milli súra regnsins og svifryksins? Malbikið er kannski að leysast upp vegna mengunar. Af hverju tonni af áli sem álverið í Straumsvík framleiðir losnar um 16kg af SO2 út í andrúmsloftið.
Súrt regn verður til vegna m.a. að SO2 hvarfast við vatn/vatnsgufu og myndar brennisteinssýru sem síðan hefur áhrif á umhverfið. Hægt er að lesa allt milli himins og jarðar um súrt regn á eftirfarandi slóð www.epa.gov/acidrain


Frumkvöðlastarfsemi á Íslandi, rétt skal vera rétt!

Ég fylgist alltaf með útkomu GEM skýrslunnar, enda ein af fáum frumkvöðlakonum á Íslandi og er stolt af því.
GEM stendur fyrir Global Entrepreneurship Monitor og samkvæmt öllum orðabókum sem ég hef komist í þá þýðir entrepreneur = ATHAFNAMAÐUR en ekki frumkvöðull. Entrepreneurship ætti þá að þýða  athafnasemi eða framtakssemi. 
Frumkvöðull er brautryðjandi eða aðili sem byrjar á einhverju nýju, nýskapandi og á ensku er það innovator eða originator.
Samkvæmt niðurstöðum GEM skýrslunnar þá er aðeins fimmtungur af athafnamanneskjunum sem eru hinir eiginlegu frumkvöðlar og stunda frumkvöðlastarfsemi.
Er ekki komin tími til að þýða orðið entrepreneur rétt ? Réttnefni skýrslunnar er því Athafnasemi á Íslandi.
mbl.is Fáar konur en margir ómenntaðir taka þátt í frumkvöðlastarfsemi á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband